Symphony of Now
Fallegt veggspjald frá sænsku listakonunni Anna Bülow.
Veggspjaldið er fallegt og stílhreint, segir margar sögur en minnir okkur líka á að muna eftir að vera í núinu og njóta þess.
Það passar vel nánast hvar sem er, á vegg eða hillu, heima eða í vinnuumhverfi.
Veggspjaldið er hægt að fá í tveimur stærðum:
30x40 cm., handmerkt af listakonunni - afhent á pappapspjaldi í umslagi.
50x70 cm., handmerkt og númerað af listakonunni (framleitt í takmörkuðu upplagi) - afhent í pappahólki.
Veggspjöldin eru prentuð á þykkan og vandaðan 240 gr. mattan pappír.
Pappírinn er framleiddur í Svíþjóð, hjá Lessebo Bruk. Sú verksmiðja skorar einna hæst í þeim iðnaði, þegar kemur að því að vera umhverfisvænn og hvað varðar kolefnislosun.
---
Anna Bülow (fædd 1975) er sænsk listakona, sem býr og starfar í Noregi.
Anna málar falleg listaverk og gerir eftir þeim listprentanir og eru verk hennar fáanleg í listaverslunum um allan heim, og nú loks á Íslandi.
Anna segir: "Við fyrstu sýn á verkum mínum mætti halda að ég sé að reyna að mála "hið fullkomna". En það er í raun hið gagnstæða - fegurðin sem ég leita að hefur ekkert að gera með tilraunir nútímans til að uppfylla eða passa í tiltekin form eða lögun. Andlit mín eru einfaldlega verkfæri í skoðun á samskiptum, jafnvægi og innihaldi".
Fegurðin sem felst í því að taka lífið alvarlega. Að þora að vera viðkvæmur. Hin hljóðu samskipti fólks. Þetta eru nokkur dæmi um það sem kveikir í sköpun Önnu og má ítrekað sjá í verkum hennar. Verk hennar er full af táknum og hvert verk felur í sér, og segir margar sögur.
"Listin mín eru sögur frá lífinu. Augnablik sem ég þarf að muna. Augnablik sem ég get ekki gleymt. "
Eftir að hafa verið að mála í meira en 20 ár, þar sem Anna hefur gert tilraunir með mismunandi form, eru verk hennar núna á milli þess að vera abstrakt og myndræn. Blanda þessara tveggja stíla gera verk hennar bæði nútímaleg en á sama tíma eiginlega tímalaus. Notkun hennar á litum er látlaus og takmörkuð, en ná samt að sýna mikla tjáningu.
Verk Önnu eru vel metin um allan heim og má finna í völdum innanhússhönnunar verslunum og galleríum. Þau eru einnig oft notuð af leiðandi innanhúss hönnuðum, arkitektum og stílistum.
---
Er veggspjaldið ekki til? Sendu okkur tölvupóst á hallo@svartarfjadrir.is með nafni veggspjaldsins og við látum þig vita þegar það kemur í sölu.
- Minni stærðin af þessu veggspjaldi er ekki framleidd í takmörkuðu upplagi en kemur handmerkt og tökum við bara mjög fá eintök af hverri mynd til landsins.
- Stærri gerðin er framleidd í takmörkuðu upplagi, kemur merkt og númeruð af listakonunni.