Crinkled no. 1
Áhugaverð abstrakt myndun forms þegar lín er krumpað saman og lagt á gamaldags pappír, sem útbúinn er með stafrænum hætti.
Rendurnar í líninu bæta vídd við prentið, á meðan gamaldags pappírinn bætir við mjúkum tónum.
Veggspjaldið er í stærð 30x40 cm og er prentað á 250 gr. hágæðapappír.
Veggspjaldið er afhent í pappahólki.
___
Konan á bakvið Coco Lapine heitir Sarah og er belgiskur hönnuður sem býr í Munich.
Sarah hefur einstakt auga fyrir grafík, stíliseringu og innanhússhönnun.
___
Er veggspjaldið ekki til? Sendu okkur tölvupóst á hallo@svartarfjadrir.is með nafni veggspjaldsins og við látum þig vita þegar það kemur í sölu.
Þetta veggspjald er ekki framleitt í takmörkuðu upplagi en við tökum bara mjög fá eintök af hverri mynd til landsins.