Amber
Veggspjaldið Amber kemur úr línu I love my type sem kallast 'Life traces', sem í lauslegri þýðingu mætti kalla 'Lífsins spor'.
Innblásturinn fyrir línuna kemur frá náttúrunni og þeirri heillandi orku sem felst í náttúrunni.
Kathrine, annar helmingur listaparsins I love my type málar myndirnar með stórum og afgerandi strokum, til að endurspegla kröfturgar hreyfingar náttúrunnar og þau spor sem hún markar í líf okkar.
Veggspjaldið er í stærð 50x70 cm. Það er málað, prentað á hágæðapappír og stimplað á bakhlið veggspjaldsins með merki 'I love my type' í höndum listamannsins á vinnustofu hennar í Kaupmannahöfn.
Veggspjaldið er afhent í pappahólki.
---
Á bak við vörumerkið 'I love my type' er listamaðurinn Kathrine Højriis. Hún er grafískur hönnuður og stofnaði fyrirtækið í Kaupamannahöfn haustið 2013.
Hún er mikil áhugamanneskja um innanhússhönnun, persónulega þróun og umhverfisvernd og hefur þessi atriði í huga við hönnun sína.
Vörumerkið á orðið stóran hóp aðdáenda og hafa vörurnar fengið jákvæð viðbrögð og hrós í fjölmiðlum, innan og utan Danmerkur og eru vörurnar til dæmis seldar í Illums Bolighus.
---
Er veggspjaldið ekki til? Sendu okkur tölvupóst á hallo@svartarfjadrir.is með nafni veggspjaldsins og við látum þig vita þegar það kemur í sölu.
Þetta veggspjald er ekki framleitt í takmörkuðu upplagi en við tökum bara mjög fá eintök af hverri mynd til landsins.