Kétos
Veggspjaldið 'Kétos' frá Coco Lapine inniheldur fimm mismunandi fallegar hvalategundir. Orðið 'kētos' er grískt og merkir stór sjávarvera líkt og sæskrímsli eða hvalur. Hvalirnir eru í hlutfallslegri stærð miðað við hvorn annan og þeim lýst með fræðiheiti, stærð og þyngd. Veggspjaldið er fallegt hvar sem er á heimilinu en hentar einstaklega vel inn í barnaherbergið.
Veggspjaldið er í stærð 50x70 cm og er prentað á 170 g hágæðapappír.
Veggspjaldið er afhent í pappahólki.
___
Konan á bakvið Coco Lapine heitir Sarah og er belgiskur hönnuður sem býr í Munich. Sarah hefur einstakt auga fyrir grafík, stíliseringu og innanhússhönnun.
___
Er veggspjaldið ekki til? Sendu okkur tölvupóst á hallo@svartarfjadrir.is með nafni veggspjaldsins og við látum þig vita þegar það kemur í sölu.
Þetta veggspjald er ekki framleitt í takmörkuðu upplagi en við tökum bara mjög fá eintök af hverri mynd til landsins.